Venesúela
Undanfarinn áratug hefur Amnesty International skrásett beitingu varðhaldsvistunar að geðþótta í Venesúela. Aðgerðirnar eru hluti kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro.
Mál þeirra níu, kvenna og manna, sem hér er fjallað um, gefa vísbendingu um umfang kúgunarstefnu yfirvalda í Venesúela. Kennarar, verkalýðsfulltrúar, mannréttindafrömuðir og fjölmiðlafólk, hver sem er, getur átt á hættu að sæta varðhaldsvist af geðþóttaástæðum í pólitískum tilgangi, vera pyndaður, sæta þvinguðu mannshvarfi og verða af lífsáformum sínum.
Sum málin, eins og mál Roland Carreño, eru beintengd pólitísku aðgerðastarfi gegn ríkisstjórn landsins en í öðrum málum, eins og í tilfelli Emirlendris Benítez, voru einstaklingar skotmark vegna fjölskyldutengsla við þriðja aðila sem stjórnvöld álitu tortryggileg.
Það hve ólík málin eru sýnir hversu mikil hættan er á að almenningur sæti varðhaldi að geðþótta og öðrum alvarlegum mannréttindabrotum þar sem áhrifanna gætir bæði á meðal þeirra sem eru yfirlýstir andstæðingar stjórnvalda og einstaklinga sem eru ekki pólitískir.
Góðar fréttir! Búið er að leysa eftirfarandi þrjá einstaklinga úr haldi af þeim níu sem voru í upprunalega ákalli okkar:
Enn eru í haldi:
• Emirlendris Benítez: móðir og verslunarkona, handtekin í ágúst 2018.
• María Auxiliadora Delgado og Juan Carlos Marrufo: hjón og sérfræðingar, handtekin í mars 2019.
• Dario Estrada: einstaklingur með taugaþroskaröskun og verkfræðingur, handtekinn í desember 2020.
• Robert Franco: kennari og verkalýðsfélagi, handtekinn í desember 2020.
• Javier Tarazona: mannréttindafrömuður og samviskufangi, handtekinn í júlí 2021.
Við höldum baráttunni áfram. Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að hin sex verði leyst úr haldi án tafar.
Nánar um skýrslu Amnesty International hér.
Tengt efni
Þín undirskrift getur bjargað mannslífi
Rússland
Maria Ponomarenko er fjölmiðlakona og tveggja barna móðir sem sætir illri meðferð í fangelsi. Hún deildi skilaboðum á samskiptamiðlinum Telegram um sprengjuárás rússneskra hersveita á leikhús í Mariupol í mars 2022. Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að rússnesk stjórnvöld leysi Mariu Ponomarenko skilyrðislaust úr haldi án tafar.
Rússland
Aleksandra (Sasha) Skochilenko er tónlistar- og listakona frá Sankti Pétursborg í Rússlandi. Hún var ákærð á grundvelli ritskoðunarlaga og hlaut sjö ára dóm hinn 16. nóvember 2023. Henni er haldið við skelfilegar aðstæður og heilsu hennar hrakar ört. Skrifaðu undir ákallið og kallaðu eftir því að Rússland afnemi ritskoðunarlögin og leysi Aleksöndru skilyrðislaust úr haldi án tafar.
Rússland
Dmitry Skurikhin er verslunareigandi og aðgerðarsinni sem afplánar 18 mánaða dóm á fanganýlendu í Rússlandi fyrir brot á ritskoðunarlögum um hernað. Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að rússnesk stjórnvöld leysi Dmitry Skurikhin skilyrðislaust úr haldi án tafar.
Rússland
Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.
Kólumbía
Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.
Alþjóðlegt
Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.
Lýðstjórnarlýðveldið Kongó
Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.
Venesúela
Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.
Ísrael
Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.
Allt starf Amnesty International er fjármagnað og drifið áfram af einstaklingum eins og þér. Hvert framlag — hver aðgerð vegur þungt.
Styrktu & skrifaðu undir áköll með símanum
Einfalt og áhrifaríkt aðgerðanet
Vertu með í netákallinu, þar sem meðlimir fá tilkynningar í tölvupósti um alvarleg mannréttindarbrot sem krefjast tafarlausra viðbragða.
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu