Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International er félagsskapur fyrir ungt fólk á aldrinum 14-25 ára. Hlutverk ungliðahreyfingarinnar er að vekja athygli á mannréttindum og mannréttindabrotum um heim allan.
Ungliðahreyfingin er opin öllum áhugasömum ungmennum sem vilja taka þátt í að skipuleggja viðburði og aðgerðir til að bera út boðskap mannréttinda. Ungliðahreyfingin fundar reglulega og öllum nýliðum er tekið fagnandi.
Með þátttöku í ungliðahreyfingunni gefst ungu fólki tækifæri til að láta gott af sér leiða, valdeflast, taka þátt í alþjóðlegu mannréttindastarfi bæði innanlands og erlendis og fá þjálfun í viðburðastjórnun.
Þú getur tekið þátt og fylgst með starfsemi ungliðahreyfingarinnar á Instagram.
Næstu viðburðir
20. Júní 2024, kl. 19:00
Haldið verður söguboð (Story-sharing café) í Húsi máls og menningar þriðjudaginn 20. júní nk. Söguboð fer þannig fram að fólk úr ólíkum áttum sest við borð og deilir eigin sögum sem spretta frá fimm hversdagslegum umræðuefnum. Við hvert borð eru 6-8 átta sæti og túlkar hjálpa þeim sem þurfa svo öll fái tækifæri til að koma sinni sögu áleiðis. Þema kvöldsins tengist reynslusögum af Gaza og tengdum mótmælum á Íslandi.
22. Júní 2024, kl. 12:00-20:00
Mannréttindasmiðjan er vettvangur fyrir ungt fólki sem brennur fyrir mannréttindum til að efla eigin rödd og tjáningu. Unnið verður með skipulögðum og ánægjulegum hætti í þágu mannréttinda. Þema smiðjunnar í ár er ritskoðun í Rússlandi. Að mannréttindasmiðju lokinni fá þátttakendur Amnesty-bol og viðurkenningarskjal. Allur matur á meðan smiðjunni stendur í boði Amnesty International og tillit tekið til mataræðis eða ef um óþol eða ofnæmi er að ræða. Hægt er að skrá sig fram til 31. maí.
Ungir aðgerðarsinnar
Ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International var stofnuð í mars 2012. Hreyfingin hefur vakið athygli á fjölda mannréttindamála með því að skipuleggja og taka þátt í ýmsum aðgerðum og viðburðum, meðal annars mótmælum, málþingi, gleðigöngu, maraþoni og alþjóðaráðstefnum.
Ungmenni eru oft virkustu félagarnir okkar. Þau taka þátt í mannréttindastarfi okkar af miklum eldmóð og sýna mikla sköpunargáfu.
Markmið ungliðahreyfingarinnar er:
Ungliðahreyfingin er góður félagsskapur með það að markmiði að gera heiminn að betri stað.
Allt starf Amnesty International er fjármagnað og drifið áfram af einstaklingum eins og þér. Hvert framlag — hver aðgerð vegur þungt.
Styrktu & skrifaðu undir áköll með símanum
Einfalt og áhrifaríkt aðgerðanet
Vertu með í netákallinu, þar sem meðlimir fá tilkynningar í tölvupósti um alvarleg mannréttindarbrot sem krefjast tafarlausra viðbragða.
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu